Selatangar

Já haldi þið ekki að maður hafi bara labbað út að selatöngum? ó jú ég gerði það:) Fór með vinkonu minni og áttum við gott spjall þarna á selatöngum.Takk fyrir frábært spjall.                                  Mikið rosalega er þetta flottur staður var að koma þarna í annað sinn.Ætla með fjölskylduna þarna fljótlega og leyfa þeim að njóta þessa staðs líka,  er ég ekki gjafmild. Joyful

Já og nú byrjar fráhaldið í fyrramálið og er ég búin að hringja í mína sponsu og segja henni hvað ég ætla að borða á morgun.Bara spennandi tími frammundan. Annað kvöld er svo fundur og er bara gaman að fara á þessa fundi.Gott að hlusta á hina segja frá þótt ég sé ekki tilbúin að tala sjálf , ég er ekki mikið fyrir það að tala fyrir framan fullt af fólki það kemur vonandi einhvern tíman. Finnst ég alltaf hljóma eins og einhver fáviti þegar eg er að reyna tala fynnst ég ekkert hafa að segja og allir hugsi "hvað er þessi að tjá sig" kannski eru þetta bara dillur í mér en svona er ég í dag.

Svo er bara þessi vika eftir í vinnuni þá er ég komin í sumarfrí í FIMM vikur JJJJÍÍÍÍHHHAAAA. Ætla ég að njóta þess að vera í fríi og gera eitthvað skemmtilegt.

Jæja ætla að fara koma mér í rúmið.Góða nótt

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband